Tungumál eru
brýr milli fólks

Menningarsetur veitir alhliða túlka- og þýðingaþjónustu á mörgum tungumálum. Við hjálpum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að ná til hvers annars.

Þjónusta okkar

Hvernig getum við aðstoðað?

Við bjóðum upp á fjölbreyttar þjónustur sem mæta þörfum hvers og eins – hvort sem þú ert einstaklingur, fyrirtæki eða opinber stofnun.

📄

Almenn þýðingaþjónusta

Nákvæmar og réttar þýðingar á skjölum, samningum, vottorðum eða öðru efni á fjölmörgum tungumálum.

  • Opinber skjöl og vottorð
  • Lögfræðileg skjöl og fjármálagerningar
  • Markaðsefni og kynningartextar
  • Vefsíður og stafrænt efni
🤝

Samfélagstúlkun

Faglegir túlkar sem aðstoða einstaklinga í samskiptum við heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, skóla og opinberar stofnanir.

  • Heilbrigðisstofnanir og sjúkrahús
  • Félagsþjónusta og sveitarfélög
  • Skólar og menntastofnanir
  • Fyrirtæki
💻

Rafræn túlkaveita

Þægileg og örugg netþjónusta þar sem hægt er að bóka túlk og fá þjónustu í fjarfundi hvenær sem þarf.

  • Bókun í gegnum vefinn
  • Fjarfundatúlkun (Zoom, Teams o.fl.)
  • Skjöl og samskipti á netinu
  • Hraðvirk afgreiðsla
📞

Símatúlkun

Fáðu reyndan túlk í síma á nokkrum mínútum – hentar þegar þörf er á fljótlegri aðstoð án fyrirvara.

  • Enginn fyrirvari
  • Hentar í bráðatilvikum
  • Mörg tungumál í boði
⚖️

Lögfræðiþjónusta

Almenn hagsmunagæsla fyrir einstaklinga og opinberar stofnanir.

  • Einkamál
  • Sakamál
  • Útlendingamál
  • Skaðabótamál
150+ Ánægðir viðskiptavinir
24h Svartími
100% Trúnaður

Reynsla og traust

Menningarsetur er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í faglegri túlka- og þýðingarþjónustu. Við vinnum með reyndum túlkum og þýðendum sem hafa sérþekkingu á sínu sviði.

Markmið okkar er að brjóta niður tungumálahindranir og auðvelda samskipti á milli einstaklinga og stofnana.

🎯

Nákvæmni

Við leggjum áherslu á að skilaboðin berist rétt og í samhengi.

🔒

Trúnaður

Öll gögn og samskipti eru meðhöndluð með fullkomnum trúnaði.

Hraði

Við svörum fljótt og skilvirkni er okkur mikilvæg.

Fólkið á bak við þjónustuna

Við erum lítið en sérhæft teymi með ástríðu fyrir tungumálum og samskiptum.

Díana Jónsdóttir

Díana Jónsdóttir

Framkvæmdastjóri, túlkur og lögfræðingur

Díana Jónsdóttir er með ML gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur yfir 10 ára reynslu við túlkun og þýðingar á arabísku.

Hvernig virkar það

Einfalt ferli – frá beiðni til afgreiðslu

Við höfum einfaldað ferlið þannig að þú getur fengið faglega þjónustu með sem minnstum tilkostnaði.

1

Sendu beiðni

Fylltu út eyðublaðið eða sendu okkur tölvupóst. Lýstu þörfum þínum og þær tungumál sem þurfa.

2

Fáðu tilboð

Við sendum þér tilboð innan 24 klukkustunda. Verð og skilmálar eru skýrir frá upphafi.

3

Staðfesting

Þegar þú samþykkir tilboðið byrjar vinnan. Við höldum þig upplýstan á meðan.

4

Afhending

Þjónustan er veitt á þeim tíma sem þú þarft – á staðnum, í síma eða fjarfundi.

Hafa samband

Við hlökkum til að heyra frá þér

Sendu okkur fyrirspurn og við svörum eins fljótt og við getum.

📞

Sími

768-5656
📍

Staðsetning

Reykjavík, Ísland

🕐

Opnunartímar

Mán–Fös: 8:00–17:00